Fotbolti.net
10.02.09 - 10:35
Magnús Már Einarsson

Dragan Kazic tekur við BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Dragan Kazic tekur við BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: BÍ/Bolungarvík

Dragan Kazic hefur verið ráðinn þjálfari hjá 2.deildarliði BÍ/Bolungarvíkur eftir að hafa undanfarin ár starfað sem aðstoðarþjálfari Milan Stefáns Jankovic hjá Grindavík.
Slobodan Milisic þjálfaði BÍ/Bolungarvík í fyrra og kom liðinu upp úr þriðju deildinni en hann getur ekki haldið áfram vegna veikinda og hefur Dragan verið ráðinn í hans stað.

Dragan hóf þjálfunarferilinn í Serbíu/Svartfjallalandi þar sem hann starfaði um árabil en hann starfaði síðan í Malasíu áður en hann kom til Íslands.

,,Eru æfingar hafnar undir stjórn hans og þykir ljóst að um toppmann er að ræða og er stjórn meistaraflokks afar ánægð með að hafa náð að tryggja leikmönnum liðsins slíkan þekkingarbrunn í fræðunum,\" segir í tilkynningu frá BÍ/Bolungarvík.

,,Um leið og hún býður Dragan velkominn til starfa, þakkar hún Slobodan Milisic fyrir frábær störf í þágu liðsins og óskar honum alls hins besta og góðs bata.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.