Fotbolti.net
10.02.09 - 17:25
Magnús Már Einarsson

Djimi Traore til Birmingham á láni (Staðfest)

Djimi Traore til Birmingham á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur fengið varnarmanninn Djimi Traore á láni frá Portsmouth.
Um er að ræða þriggja mánaða lánssamning en Birmingham hefur fengið sérstakt leyfi til að fá Traore á láni þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Traore, sem er 28 ára Frakki, lék í nokkur ár með Liverpool og vann Meistaradeildina með liðinu árið 2005.

Eftir það hefur ferill hans hins vegar legið mikið niður á við. Hann gekk í raðir Charlton árið 2006 en fór síðan til Portsmouth eftir einungis fimm mánuði.

Hjá Portsmouth hefur hann síðan ekki náð að festa sig í sessi og sjaldan verið í leikmannahópnum undanfarna mánuði.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.