Man Utd reynir við Ndiaye ef Barca kaupir Rashford - Reitz og Tonali orðaðir við Man Utd - Tekur Zidane við Real Madrid í þriðja sinn?
   þri 10. febrúar 2026 12:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mættur í Vestra ári eftir að hafa skorað þrennu gegn liðinu (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: ÍA
Breki Þór Hermannsson hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA og er farinn á láni til Vestra út komandi tímabil. Breki er uppalinn á Snæfellsnesi; var hjá Snæfelli og Víkingi Ólafsvík áður en hann kom á Akranes fyrir tímabilið 2020.

Breki er sóknarmaður sem getur leyst margar stöður framarlega á vellinum. Hann er fæddur árið 2003 og á síðasta tímabili skoraði hann ellefu mörk í 29 leikjum á láni hjá Grindavík.

„Við bindum miklar vonir við að Breki Þór haldi áfram að vaxa sem leikmaður fyrir vestan," segir í tilkynningu ÍA.

Grindavík vann 4-3 sigur á Vestra í Lengjubikarnum 15. febrúar í fyrra. Breki skoraði þrennu í þeim leik.

„Nú er ár síðan Breki skoraði glæsilega þrennu fyrir Grindavík á móti Vestra á undirbúningstímabilinu. Stjórn knattspyrnudeildar Vestra hefur miklar mætur á Breka og haft augastað á honum í langan tíma. Við bjóðum Breka hjartanlega velkominn!" segir í tilkynningu Vestra.
Athugasemdir
banner
banner