Sænski markvörðurinn Tea Lundmark er gengin í raðir Tindastóls og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.
Lundmark er 29 ára gömul og lék síðast með Sunnana í B-deildinni í Svíþjóð.
Hún er hokin af reynslu og verið á mála hjá félögum á borð við Piteå, Eskilstuna og Umeå.
Tea hefur samið um að leika með Stólunum á komandi tímabili, en hún er mætt til landsins og komin með leikheimild en hún lék sinn fyrsta leik fyrir félagið er hún kom inn í hálfleik í 16-0 tapi gegn ÍBV í fyrstu umferð Lengjubikarsins um helgina.
Tindastóll hafnaði í næst neðsta sæti Bestu deildarinnar á síðustu leiktíð og féll því niður í Lengjudeildina.
Athugasemdir

