Fotbolti.net
10.03.09 - 16:22
Hafliði Breiðfjörð

Pétur Geir Svavarsson í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Pétur Geir í leik með Fjarðabyggð.

Pétur Geir í leik með Fjarðabyggð.

Canon

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Framherjinn Pétur Geir Svavarsson er genginn aftur í raðir BÍ/Bolungarvíkur frá Fjarðabyggð og leikur því með liðinu í 2. deildinni á komandi leiktíð.
Pétur Geir komst að samkomulagi við stjórn Fjarðabyggðar um að rifta samningi sínum vegna atvinnumála eins og hann segir það á vefsíðu félagsins en hann hafði átt eitt ár eftir af samningi sínum.

Pétur Geir er mikill markaskorari en hann var markahæstur í þriðju deildinni sumarið 2007 með 25 mörk í 19 leikjum samanlagt í riðla og úrslitakeppninni. Þaðan fór hann til Fjarðabyggðar þar sem hann lék sjö leiki á síðustu leiktíð.

Þessi 28 ára gamli leikmaður hefur leikið með BÍ/Bolungarvík og áður Bolungarvík auk þess sem hann var á mála hjá HK um stund. Samúel Samúelsson, ritari BÍ/Bolungarvíkur er í viðtali á vef Bæjarins Besta, BB.is og segir mikinn feng að fá Pétur Geir til félagsins.

,,Hann hefur verið einn markahæsti leikmaður landsins síðastliðin þrjú ár. Hann átti reyndar erfitt uppdráttar í fyrra en við komum honum á réttu brautina og hann sallar inn nokkrum mörkum fyrir okkur í sumar,“ segir Samúel við Bæjarins Besta.

Heimild: BB.is | KFF.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.