Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 09:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Halldór Jón snýr aftur til Eyja (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Jón Sigurður Þórðarson er genginn í raðir ÍBV á nýjan leik. Hann kemur til ÍBV frá Fylki og skrifar undir tveggja ára samning í Eyjum.

Hann lék með ÍBV tímabilin 2022 og 2023 áður en hann hélt í Árbæinn. Hann er uppalinn hjá Fram og hefur einnig leikið með Hetti, Aftureldingu, Víkingi, ÍR, Gróttu, ÍBV og Fylki á sínum ferli.

Hann er sóknarmaður sem fæddur er 1996. Hann skoraði fimm mörk í 27 deildarleikjum með Fylki. Meiðsli settu strik í reikinginn á síðasta tímabili.

Komnir
Milan Jezdimirovic frá Serbíu
Liam Daði Jeffs frá Þrótti R
Halldór Jón Sigurður Þórðarson frá Fylki
Eiður Atli Rúnarsson frá HK
Róbert Elís Hlynsson frá KR á láni
Sesar Örn Harðarson frá Selfossi
Ari Petersen frá KÍ Klaksvík (lán)
Viggó Valgeirsson frá Njarðvík (var á láni)

Farnir
Oliver Heiðarsson til Króatíu
Sverrir Páll Hjaltested í FH
Hjörvar Daði Arnarsson í Grindavík
Þorlákur Breki Þ. Baxter í Keflavík (var á láni frá Stjörnunni)
Birgir Ómar Hlynsson í Þór (var á láni)
Jörgen Pettersen til Bandaríkjanna
Eiður Jack Erlingsson í Þrótt V.
Nökkvi Már Nökkvason í Gróttu

Samningslausir
Víðir Þorvarðarson
Elvis Okello Bwomono
Indriði Áki Þorláksson

Úr tilkynningu ÍBV
Halldór er fæddur 1996 og hefur leikið 196 meistaraflokksleiki. Hann leikur aðallega sem sóknarmaður en hefur eiginleika til að spila fleiri stöður á vellinum.

Halldór lék með ÍBV árin 2022 og 2023 en þá kom hann til liðsins frá Víkingi. Hann skoraði þrennu í góðum sigri á Valsmönnum 2022 á Hásteinsvelli sem flestir Eyjamenn muna vel eftir.

Halldór gerir tveggja ára samning við ÍBV en það að hann þekki aðstæður í Eyjum er öflugt og kemur hann til með að koma sér hratt og örugglega í takt við liðið.

Knattspyrnuráð bindur miklar vonir við leikmanninn og vonast til að hann nái að styrkja lið ÍBV fyrir baráttuna í Bestu deildinni.

Athugasemdir
banner