Þór 5 - 1 Valur
0-1 Kristján Oddur Kristjánsson ('15)
1-1 Atli Sigurjónsson ('28)
2-1 Atli Sigurjónsson ('43)
3-1 Atli Sigurjónsson ('64)
4-1 Atli Sigurjónsson ('67)
5-1 Atli Sigurjónsson ('79)
0-1 Kristján Oddur Kristjánsson ('15)
1-1 Atli Sigurjónsson ('28)
2-1 Atli Sigurjónsson ('43)
3-1 Atli Sigurjónsson ('64)
4-1 Atli Sigurjónsson ('67)
5-1 Atli Sigurjónsson ('79)
Atli Sigurjónsson átti ótrúlegan leik þegar Þór fór illa með Val í Lengjubikarnum í kvöld.
Um var að ræða hreinan úrslitaleik um að komast í undanúrslit Lengjubikarsins. Valur ákvað þó að mæta með lið að mestu skipað reynslulitlum mönnum sem hafa litla eða nær enga reynslu af meistaraflokki liðsins. Valur er ekki fyrsta liðið sem mætir með varalið í Bogann vegna meiðslahættu.
Kristján Oddur Kristjánsson kom Valsmönnum þó yfir í leiknum en þó tók Atli til sinna ráða og kom Þór í 2-1 með tveimur mörkum.
Í seinni hálfleik gerði hann sér svo lítið fyrir og bætti við þremur mörkum til viðbótar, skoraði því alls fimm mörk í 5-1 sigri Akureyringa.
Atli, sem kom heim í Þór í vetur, er því búinn að skora sjö mörk í Lengjubikarnum í vetur.
Þórsarar fara í undanúrslit en Valsmenn sitja eftir í þriðja sæti riðilsins.
Athugasemdir



