Vænta má þess að Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, verði í flíkum frá Arason á hliðarlínunni í sumar.
Gaman var að sjá Óskar Hrafn í nýju hlutverki, hann stillti sér upp í myndatöku fyrir tískumerkið Arason. Það er ekki annað hægt að segja en hann taki sig afskaplega vel út.
Fatamerkið Arason er stofnað af Sverri Antoni Arasyni fatahönnuði. Arason er stofnað árið 2023 og er þekkt fyrir fágaðan stíl, vandaðar flíkur og klassíska hönnun með nýstárlegu ívafi.
Arason hefur frá stofnun eingöngu notast við hágæða efni. Framleiðsla Arason fer að stórum hluta fram á Ítalíu.
Fyrsti leikur KR á tímabilinu verður gegn Keflavík á sunnudag á Meistaravöllum í Vesturbæ Reykjavíkur.
Sá leikur hefst klukkan 17:00.



