10.05.08 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Einar Pétursson í Leikni R. á láni frá Fylki (Staðfest)

Einar á æfingu hjá Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Leiknir Reykjavík hefur fengið varnarmanninn Einar Pétursson á láni frá Fylki.
Einar er 22 ára gamall miðvörður en hann hefur undanfarna daga æft með Leikni og þá lék hann æfingaleik með liðinu gegn Ægi fyrr í vikunni.
Einar á leiki að baki með U16 og U17 ára landsliðnu en hann tók sér frí frá knattspyrnu um tíma.
Í vetur gerði hann hins vegar nýjan tveggja ára samning við Fylki og nú hefur hann verið lánaður í Leikni.
Einar hefur nú þegar fengið leikheimild og því getur hann leikið með Leikni á mánudaginn þegar að liðið fer til Eyja og mætir ÍBV í fyrstu umferð fyrstu deildar.