Fotbolti.net
10.05.11 - 14:01
Magnús Már Einarsson

Kevin Brown í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur.

Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

BÍ/Bolungarvík hefur samið við vinstri bakvörðinn Kevin Brown sem var á reynslu hjá félaginu á dögunum.

Þessi 18 ára gamli leikmaður lék síðast með Raith Rovers í heimalandi sínu.
Brown fékk leikheimild með BÍ/Bolungarvík í dag sem og Nicky Deverdics en þeir verða báðir með í fyrstu umferðinni gegn ÍR á laugardag.

Hins vegar eru Michael Abnett, Sigurgeir Sveinn Gíslason og Sölvi Gylfason allir meiddir en þeir meiddust í 3-1 sigri á KFG í Valitor-bikarnum í gær.

Abnett verður líklega frá keppni í 2-3 vikur og Sigurgeir og Sölvi eru tæpir fyrir leikinn á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.