Fotbolti.net
10.05.11 - 17:48
Magnús Már Einarsson

Fyrrum unglingaliðsmaður úr Arsenal í Árborg (Staðfest)

Fyrrum unglingaliðsmaður úr Arsenal í Árborg (Staðfest)
Canon

Mynd: Guðmundur Karl

Árborg hefur samið við enska leikmanninn Alfred Kamara en hann mun leika með liðinu í 2. deildinni í sumar en þetta kemur fram á Sunnlenska.is.
Alfred er 26 ára gamall framherji og miðjumaður. Hann er fæddur í Sierra Leone en er með enskt ríkisfang og spilaði landsleiki með U15 ára liði Englands.

Kamara fór í gegnum unglingaakademíu Arsenal áður en hann reyndi fyrir sér hjá Leicester og Ipswich. Hann hefur undanfarin ár leikið með neðrideildarliðum í Lundúnum.

Leikmaðurinn er kominn með leikheimild hjá Árborg en hann kemur til landsins í næstu viku og missir af fyrstu tveimur leikjum liðsins í deildinni, gegn Njarðvík og Hamri.

Heimild: Sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.