10.05.11 - 19:41
Sebastían Sævarsson Meyer
Thomas Kraft til Hertha Berlin (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Herha Berlin hefur fengið góðan liðstyrk frá Bayern München eftir að félagið nældi sér í Thomas Kraft, varamarkvörð Bayern, á frjálsri sölu.
Samningur hans við Bayern rennur út í sumar en þar sem Thomas Kraft hefur að mestu leyti vermt varamannabekk Bayern í ár hefur Kraft ákveðið að fara nýjar leiðir. Þessi 23 ára gamli markvörður mun því verja mark Herthu Berlin eftir sumar en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við höfuðborgaliðið.
Hertha Berlin tryggði sér nýlega sæti í þýsku úrvalsdeildinni á ný en félagið hefur verið á toppi 2. Bundesligunnar nánast allt tímabilið. Stjórn liðsins ætlar sér stóra hluti á næstu leiktíð í úrvalsdeildinni með því að styrkja hópinn til muna.
,,Thomas Kraft var eftirsóttur af mörgum liðum. Hann er góður og efnilegur markvörður og við erum hæst ánægðir með komu hans til félagsins.\" sagði Michael Preetz, yfirmaður íþróttamála hjá Herthu Berlin.