Fotbolti.net
10.06.06 - 19:08
Magnús Már Einarsson

Andri Valur lánaður til Völsungs (Staðfest)

Andri Valur lánaður til Völsungs (Staðfest)
Canon

Mynd: Úr einkasafni

Sóknarmaðurinn Andri Valur Ívarsson hefur verið lánaður til Völsungs í annarri deildinni frá Val en hann kom til síðarnefnda liðsins frá Húsavíkurliðinu síðastliðið haust.
Andri Valur hefur verið á varamannabekk Vals í öllum fjórum leikjum liðsins í Landsbankadeildinni í sumar en án þess þó að hafa komið við sögu.

Í fyrra skoraði Andri Valur sjö mörk í fyrstu deildinni fyrir Völsung og hann byrjar vel hjá liðinu í ár því hann skoraði þrennu gegn Huginn í dag og má lesa meira um það í umfjöllun Fótbolti.net um aðra deildina sem er væntanleg á næstunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.