10.06.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Titi Camara ráðinn landsliðsþjálfari Gíneu (Staðfest)

Titi Camara.

Mynd: Getty Images

Titi Camara.

Mynd: Getty Images
Titi Camara, fyrrum framherji Liverpool, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Gíneu en hann tekur við starfinu af Robert Nouzaret.
Nouzaret, sem er Frakki, fékk að taka pokann sinn eftir að Gínea tapaði gegn Fílabeinsströndinni í undankeppni HM síðastliðinn sunnudag.
Nouzaret hafði fengið mikla gagnrýni og ríkisstjórn Gíneu hafði meðal annars gagnrýnt þá ákvörðun að hann fengi 23 þúsund evrur í laun á ári.
Camara var tæknilegur ráðgjafi hjá landsliði Gíneu en hann hefur nú verið hækkaður um tign.
Auk þess að leika með Liverpool þá lék hinn 36 ára gamli Camara einnig með Marseille og West Ham á ferli sínum svo eitthvað sé nefnt.

Heimild: Reuters