10.06.11 - 08:33
Magnús Már Einarsson
Montella tekinn við Catania (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Vincenzo Montella var í gær ráðinn þjálfari Catania á Ítalíu en hann tekur við liðinu af Diego Simeone.
Montella þjálfaði Roma síðustu fjóra mánuðina á síðasta tímabili eftir að hafa áður verið þjálfari hjá unglingaliði félagsins.
Á sínum tíma var Montella í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnu Roma en hann raðaði inn mörkunum hjá félaginu.
Montella, sem fagnaði mörkum sínum alltaf með því að leika flugvél, lagði skóna á hilluna árið 2008.
Hann mun nú stýra Catania á næsta tímabili en liðið endaði í þrettánda sæti í Serie A á síðasta tímabili.

Heimild: AP