10.06.11 - 18:36
Magnús Már Einarsson
Marlon King til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á dögunum, hefur fengið framherjann Marlon King til liðs við sig frá Coventry.
Þessi 31 árs gamli leikmaður var við það að gera nýjan samning við Coventry en á síðustu stundu ákvað hann að fara til Birmingham þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning.
King gekk til liðs við Coventry síðastliðið haust og hann skoraði tólf mörk með Aroni Einari Gunnarssyni og félögum á tímabilinu.
Coventry samdi við King í september eftir að hann hafði verið í fangelsi í nokkra mánuði.

Heimild: BBC