Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 09:19
Elvar Geir Magnússon
Ísak Bergmann gerði Argentínumenn bálreiða
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ísak Bergmann Jóhannesson fékk gult spjald í 3-0 tapi íslands gegn heimsmeisturum Argentínu í vináttulandsleiknum sem fram fór í nótt.

Alexis Mac Allister fór í grasið eftir viðskipti við Skagamanninn. Brot Ísaks vakti litla kátínu hjá samherjum Mac Allister.

Talsverð þvaga myndaðist og dómarinn Rosendo Mendoza átti fullt í fangi með að stilla til friðar.

Cristian Romero, Lautaro Martínez og fleiri leikmenn Argentínu voru bálreiðir.

Lestu um leikinn: Argentína 3 -  0 Ísland

HM er handan við hornið og eru Argentínumenn í riðli með Alsír, Austurríki og Jórdaníu.


Slapp
banner
banner