Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 10. júní 2026 17:31
Kári Snorrason
McKenna óvænt hættur með Ipswich (Staðfest)
Tekur sér hlé frá fótbolta.
Tekur sér hlé frá fótbolta.
Mynd: EPA
Kieran McKenna hefur ákveðið að láta af störfum sem stjóri Ipswich og ætlar að taka sér hlé frá fótbolta.

Ákvörðunin óvænta kemur rúmum mánuði eftir að hann kom liðinu upp í ensku úrvalsdeildina. Hann stýrði Ipswich alls í fimm ár.

Þessi fertugi Norður-Íri hefur í sumar verið orðaður við stjórastól Fulham eftir að Marco Silva yfirgaf félagið en ljóst er að ekkert verður úr því.

Á heimasíðu félagsins segir McKenna ákvörðunina hafa verið tekna eftir vandlega umhugsun síðustu vikur og taldi tímann réttan eftir að hafa tryggt félaginu sæti í úrvalsdeildinni á ný.

Liðið hafnaði í öðru sæti í Championship deildinni á nýloknu tímabili en liðið hafði fallið úr ensku úrvalsdeildinni árið áður.


Slapp
banner