10.07.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Morgan De Sanctis fer frítt til Sevilla (Staðfest)

Morgan De Sanctis

Mynd: Getty Images

Morgan De Sanctis

Mynd: Getty Images
Ítalski markvörðurinn Morgan De Sanctis hefur gengið til liðs við spænska félagið Sevilla eftir að hann sagði upp samningnum sínum við Udinese.
Sakmvæmt reglugerð 17 hjá FIFA má leikmaður sem er eldri en 28 ára borga upp samning sinn eftir þrjú ár en ekki ganga til liðs við félag í sama landi.
Hann samþykkti því samningstilboð frá UEFA Cup meisturunum og mun hann vera kynntur á blaðamannafundi á morgun. De Sanctis spilaði 194 leiki fyrir Udinese síðan hann kom frá Juventus árið 1999.
Þá er Tom De Mul einnig á leið til félagsins frá Ajax en hann skoraði fjögur mörk í 28 leikjum hjá hollenska félaginu á síðasta tímabili.