10.07.07 - 10:40
Magnús Már Einarsson
Craig Bellamy til West Ham (Staðfest)

Bellamy ásamt Alan Curbishley stjóra West Ham.

Mynd: Getty Images

West Ham hefur keypt framherjann Craig Bellamy frá Liverpool á 7,5 milljónir punda og hefur þessi 27 ára gamli Walesverji gert fimm ára samning við félagið.
Bellamy hefur fallið niður goggunarröðina hjá Liverpool eftir að liðið fékk Fernando Torres og Andriy Voronin. Þessi fyrirliði Walesverja kom til Liverpool frá Blackburn á sex milljónir punda fyrir ári síðan.
Bellamy skoraði alls níu mörk í 42 leikjum fyrir Liverpool en hann hefur einnig leikið með Norwich City, Coventry City, Newcastle United og Celtic.
,,Ég vildi vera viss um að ef ég færi frá Liverpool myndi ég fara til félags sem myndi berjast um Evrópusæti. Ég vil spila í Evrópu, það er mikilvægt fyrir mig og ég fann fyrir sama krafti og metnað hér hjá West Ham," sagði Bellamy við heimasíðu félagsins.
,,Það var mikilvægt fyrir mig að byrja að spila reglulega. Ég hefði getað verið hjá Liverpool sem einn af hópnum, tekið við peningunum og spilað einstöku sinnum en þá hefði ég verið að svindla á sjálfum mér og persónuleika mínum," sagði Bellamy.

Heimild: BBC