Fotbolti.net
10.07.09 - 06:00
Davíð Örn Atlason

Jermaine Pennant til Real Zaragoza (Staðfest)

Jermaine Pennant til Real Zaragoza (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jermaine Pennant er genginn í raðir spænska liðsins Real Zaragoza eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Liverpool.
Þessi fyrrum leikmaður Arsenal stóðst læknisskoðun í gær og hann á eftir að hjálpa nýliðunum við að halda sér í spænsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili.

Þessi 26 ára gamli kantmaður er fyrsti leikmaðurinn sem að gengur í raðir félagsins í sumar. Pennant sem skrifaði undir þriggja ára samning var mjög ánægður með félagsskiptin.

,,Ég vildi koma til Spánar og ég fékk tilboð frá mikilvægum liðum í Evrópu, en ég valdi Real Zaragoza,\" sagði Pennant við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Ég vil fara að byrja og standa mig vel í deildinni.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.