Fotbolti.net
10.07.09 - 10:16
Magnús Már Einarsson

Gelson Fernandes til St Etienne (Staðfest)

Gelson Fernandes til St Etienne (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gelson Fernandes, miðjumaður Manchester City, hefur gengið til liðs við franska félagið St Etienne en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi 22 ára gamli Svisslendingur kom til City frá FC Sion í júlí árið 2007.

Á síðustu leiktíð lék hann sautján leiki í ensku úrvalsdeildinni með Manchester City.

Í heildina lék hann 59 leiki hjá félaginu og skoraði fjögur mörk en hann mun nú leita á ný mið í Frakklandi þar sem hann mun leika undir stjórn Alain Perrin, fyrrum stjóra Portsmouth.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.