Fotbolti.net
10.07.09 - 11:29
Magnús Már Einarsson

Anton Peterlin til Everton (Staðfest)

Anton Peterlin til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur fengið miðjumanninn Anton Peterlin til félagsins en hann spilaði síðast í fjórðu efstu deild í Bandaríkjunum.
Peterlin, sem er 22 ára, er með danskt vegabréf þar sem að faðir hans er danskur.

Hann fór til Everton á reynslu fyrr á þessu ári og náði að heilla forráðamenn félagsins.

,,Það er frábært að vera kominn hingað,\" sagði Peterlin eftir að gengið var frá samningum.

,,Ég vonast til að geta sýnt stjóranum að ég get staðiði mig vel. Ef að ég get komist á varamannabekkinn og síðan af bekknum á þessu tímabili þá yrði það frábært.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.