Fotbolti.net
10.07.11 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ítalska deildin

Erik Lamela til Roma (Staðfest)

Roma hefur fengið góðan liðsstyrk.

Roma hefur fengið góðan liðsstyrk.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Roma hefur gengið frá kaupum á Erik Lamela, 19 ára gömlum Argentínumanni sem er talinn einn efnilegustu leikmönnum þjóðar sinnar. Þetta staðfesti forseti River Plate í gærkvöld.
,,Lamela er leikamður AS Roma, \" sagði Daniel Passarella fyrrverandi landsliðsfyrirliði Argentínu við fréttamenn eftir fund með fulltrúum Roma en aðeins á eftir að ganga frá félagaskiptunum hjá knattspyrnusambandinu.

Ítalskir fjölmiðlar segja að River Plate greiði 12 milljónir evra fyrir leikmanninn sem lék sinn fyrsta landsleik fyrir Argentínu gegn Paragvæ í vináttuleik í maí. Hann fær fimm ára samning.

Lamela er hávaxinn vinstri fótar leikmaður sem vakti athygli í fyrra í grannaslag gegn Boca Juniors. Barcelona og mörg önnur félög sýndu honum áhuga en AS Roma sem endaði í sjötta sæti ítölsku deildarinnar hreppti hnossið. Luis Enrique fyrrverandi leikmaður Spánar og Barcelona þjálfar Roma á næstu leiktíð.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.