10.07.11 - 13:03
Hafliði Breiðfjörð
Kevin Phillips til Blackpool (Staðfest)

Kevin Phillips leikur með Blackpool á næstu leiktíð.

Mynd: Getty Images

Kevin Phillips leikur með Blackpool á næstu leiktíð.

Mynd: Getty Images
Framherjinn Kevin Phillips er genginn til liðs við Blackpool sem leikur í næst efstu deild Englands, Championship deildinni, á næstu leiktíð.
Hann hefur skrifað undir eins árs samning við félagið með möguleika á framlengingu sem verður ákveðin næsta sumar.
Phillips sem er 37 ára gamall var að renna út á samningi hjá Birmingham og gat því farið frítt frá félaginu.
Hann hefur mikla reynslu og hefur skorað mikið á ferlinum og það telur Ian Holloway stjóri Blackpool að hann geti nýtt sér.

Heimild: Sky