Fotbolti.net
10.08.06 - 06:20
Magnús Már Einarsson

Aoute til Deportivo og Munitis til Racing (Staðfest)

Dudu Aoute.

Dudu Aoute.

Canon

Mynd: Getty Images

Deportivo La Coruna hefur fengið markvörðinn Dudu Aoute frá Racing Santander fyrir óuppgefið fé en auk þess fer kantmaðurinn Pedro Munitis aftur til síns gamla félags, Racing.
Aoute sem er 28 ára Ísraeli hefur gert fjögurra ára samning við Deportivo en hann kom til Racing frá Maccabi Haifa árið 2003. Hann mun fá það hlutverk að leysa Jose Molina af hólmi í markinu eftir að samningur hans við Depor rann út síðastliðið vor.

,,Ég er ánægður að vera hér. Það eru frábærir varnarmenn, miðjumenn og framherjar hjá félaginu. Þeir hafa sigursælan þjálfara og eru mikilvægt lið í spænskum og evrópsukum fótbolta," sagði Aoute á blaðamannafundi í gær en Deportivo stefnir hærra á komandi tímabil heldur en á síðasta tímabili þegar að þeir enduðu í áttunda sæti.

Eins og fyrr segir fer Munitis til Racing í skiptum en þessi fyrrum leikmaður Real Madrid hefur áður leikið með Racing og þekkir því vel til í Santander.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.