Fotbolti.net
10.08.06 - 10:15
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Ítalska deildin

Zlatan Ibrahimovic til Inter (Staðfest)

Zlatan skoraði 23 mörk í 70 leikjum fyrir Juventus

Zlatan skoraði 23 mörk í 70 leikjum fyrir Juventus

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Ítalíumeistarar Inter hafa gengið frá kaupunum á sænsku stórstjörnunni Zlatan Ibrahimovic frá Juventus fyrir 16,7 milljónir punda.
Svíinn skrifar undir fjögurra ára samning á Giuseppe Meazza en hann hafði áður meðal annars hótað að fara í lögsókn við félagið til að losna frá því og neitað að mæta í æfingaleik.

Zlatan er ekki fyrsti leikmaðurinn til að fara frá Juve til Inter í sumar af því að fyrir rúmri viku fór miðjumaðurinn Patrick Vieira sömu leið. Þá höfðu Gianluca Zambrotta, Emerson, Fabio Cannavaro og Lilian Thuram einnnig yfirgefið klúbbinn í sumar og farið til Spánar.

Þá fór Hernan Crespo einnig til Inter frá Chelsea fyrr í þessari viku og munu því þessi kaup líklega hækka þá orðróma um að Obafemi Martins og Adriano gætu verið á leiðinni til Englands enn meira.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.