Fotbolti.net
10.08.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Darren Carter til Preston (Staðfest)

Darren Carter í leik með Birmingham á sínum tíma

Darren Carter í leik með Birmingham á sínum tíma

Canon

Mynd: Getty Images

Preston hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Darren Carter frá West Brom og gæti verðmiðinn farið upp í 1,25 milljón punda.
Þessi 23 ára gamli fyrrum leikmaður Birmingham kostar Preston 750 þúsund pund og er hann fjórðu kaup stjórans Paul Simpson í sumar. Þá fær West Brom 20% af kaupverðinu verði hann seldur frá Preston síðar.

Carter kom til WBA fyrir 1,5 milljón punda árið 2005 en hann hefur dottið niður goggunarröðina í sumar með komu nýrra leikmanna.

Fyrr í sumar hafði Preston fengið til sín varnarmanninn Billy Jones frá Crewe, sóknarmanninn Karl Hawley frá Carlisle og miðjumanninn Kevin Nicholls.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.