10.08.07 - 06:00
Sindri Þór Þorgeirsson
Daniel Cousin til Rangers (Staðfest)

Rangers fá liðsstyrk

Mynd: Getty Images

Rangers fá liðsstyrk

Mynd: Getty Images
Skosku risarnir í Glasgow Rangers gengu í gær frá kaupunum á gabonska sóknarmanninum Daniel Cousin frá franska liðinu Lens, kaupverðið er talið vera 1 milljón punda.
Cousin sem er þrítugur skrifaði undir þriggja ára samning við Rangers en hann hafði áður leikið 101 leik með liði Lens og hann hefur einnig spilað 14 leiki með landsliði Gabon og skorað í þeim 6 mörk.
,,Ég er mjög ánægður með að vera orðinn leikmaður Rangers. Ég er mjög ánægður með að fá að spila fyrir þetta lið," sagði Cousin og bætti við: ,,Þetta er sögufægur klúbbur. Ég er mjög ánægður og stoltur. Ég er ekki í 100% formi en ef að þjálfarinn biður mig um að spila um helgina, þá spila ég."
,,Ég er augljóslega mjög ánægður með að klára þessi kaup og ég hlakka til að sjá Daniel spila fyrir Rangers," sagði Walter Smith þjálfari Rangers.

Heimild: Sky Sports