Fotbolti.net
10.08.07 - 11:39
Magnús Már Einarsson

Johan Djourou til Birmingham á láni (Staðfest)

Johan Djourou til Birmingham á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Johan Djourou varnarmaður Arsenal hefur samþykkt að ganga til liðs við Birmingham á láni þar til í janúar. Þessi tvítugi Svisslendingur er tíundi leikmaðurinn sem kemur til nýliða Birmingham í sumar.
Djourou lék 30 leiki með aðalliði Arsenal á síðustu leiktíð og skrifaði síðan undir nýjan sex ára samning við félagið.

Arsene Wenger stjóri Arsenal vill láta Djourou fá meiri reynslu og fer leikmaðurinn beint inn í leikmannahóp Birmingham fyrir leikinn gegn Chelsea í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag.

Djourou spilar oftast í miðverði en hann getur einnig leikið í bakverði, á miðjunni á köntunum.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.