10.08.07 - 13:24
Hörður Snævar Jónsson
Carlos Tevez til Manchester United (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sagan endalausa um Carlos Tevez er á enda. Hann hefur nú loksins gengið í raðir Manchester United. Tevez skrifaði undir tveggja ára lánssamning við United. Tevez mun leika í treyju númer 32.
Tevez kemur til United frá West Ham þar sem hann var á síðustu leiktíð.
Ensku meistararnir hafa nú staðfest komu Tevez. ,,Manchester United eru glaðir að tilkynna það að Carlos Tevez hefur verið skráður leikmaður með aðalliðinu af ensku úrvaldsdeildinni," segir í fréttatilkynningu á heimasíðu United.
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United hefur sagt að Tevez muni þó eflaust ekki spila sinn fyrsta leik fyrr en um næstu helgi.
,,Þrátt fyrir að þetta gerðist fyrir helgina er ólíklegt að ég myndi nota hann á sunnudaginn. Hann er líklegri til að spila leikinn gegn Manchester City um næstu helgi," sagði Ferguson.

Heimild: Sky