Fotbolti.net
10.08.07 - 15:52
Magnús Már Einarsson

Scott Carson til Aston Villa á láni (Staðfest)

Scott Carson til Aston Villa á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa hefur fengið Scott Carson á láni frá Liverpool út komandi tímabil en samningurinn mun kosta um það bil tvær milljónir punda.
Carson hefur ekki náð að slá Pepe Reina út úr byrjunarliði Liverpool en auk Aston Villa þá sýndi Manchester City honum áhuga.

Carson sem kom til Liverpool frá Leeds á sínum tíma var á láni hjá Charlton á síðustu leiktíð.

,,Þetta er frábært fyrir Aston Villa. Scott hefur sannað sig sem úrvalsdeildarleikmaður og hann var nálægt því að halda Charlton uppi á síðustu leiktíð þegar hann lék oft frábærlega," sagði Gareth Barry fyrirliði Aston Villa ánægður með að krækja í Carson.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.