Fotbolti.net
10.08.11 - 08:41
Magnús Már Einarsson

Shane Long til WBA (Staðfest)

Shane Long til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur keypt framherjann Shane Long frá Reading.
Þessi 24 ára gamli leikmaður skrifaði undir þriggja ára samning við Reading en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.

Long skoraði 25 mörk fyrir Reading þegar liðið komst í úrslitaleik í umspili í Championship deildinni á síðasta tímabili.

,,Með kaupunumm á Shane er hópurinn okkar nálægt því að verða tilbúinn,\" sagði Roy Hodgson stjóri WBA.

WBA á verðugt verkefni fyrir höndum á laugardag en liðið mætir þá Englandsmeisturum Manchester United í fyrsta leik tímabilsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.