Fotbolti.net
10.08.23 - 09:45
Elvar Geir Magnússon

Bayern búið að ná samkomulagi við Tottenham um Kane

Hvað gerir Harry Kane?

Hvað gerir Harry Kane?

Canon

Mynd: Getty Images

Bayern München hefur náð samkomulagi við Tottenham um kaupverð á enska sóknarmanninum Harry Kane. Upphæðin fer nærri 100 milljónum punda.

Nú er það í höndum Kane að ákveða hvort hann vilji flytja sig yfir í þýska boltann.
Félögin hafa verið í viðræðum í margar vikur og var farið að stefna í að Kane myndi halda kyrru fyrir hjá Tottenham. Hann er sagður hrifinn af hugmyndum nýs stjóra, Ange Postecoglou.

Þessi þrítugi sóknarmaður á eitt ár eftir af samningi sínum við Tottenham en hann skoraði fjögur mörk í 5-1 sigri gegn Shaktar Donetsk í æfingaleik á sunnudag.

Kane hefur viljað að framtíð sín skýrist áður en enska úrvalsdeildin fer af stað en Tottenham á leik gegn Brentford á sunnudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.