Fotbolti.net
10.09.09 - 14:34
Hafliði Breiðfjörð

Danny Webber til Portsmouth (Staðfest)

Danny Webber.

Danny Webber.

Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth er enn að fá til sín leikmenn þó félagaskiptaglugginn sé lokaður því í dag samdi framherjinn Danny Webber við félagið til tveggja ára.
Webber sem er 27 ára gamall var félagslaus eftir að hafa fengið samningi sínum hjá Sheffield United rift í sumar. Hann kom á reynslu hjá Portsmouth og heillaði menn nóg til að fá samning.

,,Ég vildi semja við hann þegar ég var hjá Nottingham Forest en hann fór til Watford,\" sagði Paul Hart stjóri Portsmouth á vef félagsins.

,,Hann er enn hungraður í að sanna sig, spilar fast á varnarmennina og gefur okkur aðra möguleika í framlínuna.\"

,,Þegar ég komst að því að Danny væri á lausu bað ég hann að koma hingað og æfa með okkur. Ég var ánægður með það sem ég sá.\"


Portsmouth hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum í úrvalsdeildinni á tímabilinu og eru í botnsæti deildarinnar eftir að hafa skorað aðeins eitt mark.

Webber sem hóf feril sinn hjá Manchester United hafði verið að æfa með því liði síðan hann hætti með Sheffield United.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.