Fotbolti.net
10.10.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Middlesbrough lánar Davies til Southampton (Staðfest)

Davies er kominn til Dýrlinganna á láni

Davies er kominn til Dýrlinganna á láni

Canon

Mynd: Getty Images

Southampton hefur fengið til sín varnarmanninn Andrew Davies frá Middlesbrough á þriggja mánaða lánssamningi með möguleika á því að kaupa hann í janúar.
Þessi 22 ára gamli leikmaður spilaði sinn fyrsta leik fyrir Bori í nóvember 2002 þegar hann var aðeins sautján ára gamall.

Núna hefur hann spilað 65 leiki í aðalliði Middlesbrough en stjórinn Gareth Southgate telur sig greinilega ekki hafa not fyrir hann.

Davies hefur einnig farið til Queens Park Rangers og Derby á láni og þá greindi Norwich einnig frá því nýlega að þeir höfðu áhuga á kaupa kappann.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.