Fotbolti.net
10.10.07 - 19:54
Hafliði Breiðfjörð

Stefán Þórðarson til ÍA (Staðfest)

Stefán Þór Þórðarson.

Stefán Þór Þórðarson.

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Stefán Þórðarson er genginn í raðir ÍA en þetta var staðfest á vefsíðu félagsins nú í kvöld. Hann hefur undanfarin ár leikið með Norrköping í Svíþjóð þar sem hann er í guðatölu en hafði nýlega tilkynnt að hann hyggðist snúa heim til Íslands fyrir næstu leiktíð.
Stefán er skagamönnum að góðu kunnur enda borinn og barnfæddur skagamaður og lék fjölda leikja fyrir ÍA á árum áður og síðast árið 2004.

Eins og flestir vita hefur Stefán átt miklu láni að fagna á sínum knattspyrnuferli en Stefán flytur búferlum til Akraness nú með haustinu en hann hefur spilað fyrir Norrköping við góðan orðstír undanfarin ár.

Guðjón Þórðarson segir í viðtali við heimasíðu ÍA að það sé frábær styrkur fyrir skagamenn að fá Stefán til liðs við félagið. Ljóst sé að hann styrki liðið mikið fram á við og færi liðinu nýja möguleika í sóknarleik liðsins.

Guðjón bætir við að hann hlakki til að vinna með Stefáni að nýju og þá sé ekki síður ánægjulegt að fá þennan öfluga skagamann heim á ný. Þetta sýni einnig að skagamenn séu á réttri leið með þá uppbyggingu sem hafin var síðasta haust.

Heimild: Vefsíða ÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.