10.11.06 - 11:05
Magnús Már Einarsson
Hjörtur Hjartarson í Þrótt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur
Framherjinn Hjörtur Hjartarson hefur komist að samkomulagi við Þrótt úr fyrstu deild karla um að leika með liðinu næstu þrjú árin en þetta staðfesti hann við Fótbolti.net í gær.
Hjörtur sem er 32 ára hefur undanfarin ár leikið með ÍA en hann hefur nú ákveðið að ganga til liðs við Þróttara. Hann varð samningslaus í síðasta mánuði en hann hefur leikið með Skagamönnum frá árinu 2000 þegar hann kom aftur til liðsins eftir dvöl hjá Skallagrími.
Í sumar skoraði Hjörtur eitt mark í fimm leikjum í Landsbankadeildinni en hann hefur skorað þónokkuð mörg mörk með Skagamönnum undanfarin ár og til að mynda var hann markahæstur í efstu deild árið 2001 þegar hann skoraði fimmtán mörk í átján leikjum.
Hjörtur er þessa stundina í námi í Bandaríkjunum þar sem hann leikur einnig með skólaliði og hefur slegið hvert metið á fætur öðru í markaskorun en hann bætti meðal annars metið í NAIA yfir flest skoruð mörk.