Fotbolti.net
10.11.09 - 12:31
Hafliði Breiðfjörð

Magnús Björgvinsson til SV Straelen (Staðfest)

Spilar hér á landi næsta sumar en er hættur með Stjörnunni

Magnús í leik með Stjörnunni gegn Haukum.

Magnús í leik með Stjörnunni gegn Haukum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Magnús Björgvinsson er genginn til ilðs við SV Straelen í Þýskalandi en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net núna í hádeginu.
Hann segist hættur að leika með Stjörnunni þar sem hann hefur verið undanfarin ár en hyggst snúa aftur hingað til lands í maí til að spila í Pepsi-deildinni. Hann hafði æft með Haukum áður en hann hélt út.

,,Ég er kominn út og skrifaði undir saming við SV Straelen sem leikur í 5. deild í Þýskalandi,\" sagði Magnús við Fótbolta.net í hádeginu en hann sagði að Lárus Guðmundsson fyrrverandi þjálfari hans í Stjörnunni hafi aðstoðað sig við málið.

,,Það er ekki mikið búið af tímabilinu en liðið er í 16. sæti sem er fallbarátta eins og staðan er í dag. Ég fer á fyrstu æfinguna hjá þeim í dag eftir að hafa komið hingað í fyrradag.\"

,,Ég verð bara hérna fram á vor til að byrja með. Svo kem ég heim næsta sumar. Ég er búinn að vera að æfa með Haukum en veit ekki hvað ég geri næsta sumar. Stjarnan bauð mér samning en ég ákvað að semja ekki aftur þar því ég fékk ekki nóg að spila. Haukar hafa boðið mér samning en ég veit ekki hvað ég geri.\"

Magnús sem er 22 ára gamall var mikið á bekknum hjá Stjörnunni í sumar en skoraði þrjú mörk í 14 leikjum sem hann tók þátt í. Hann hefur allan sinn feril leikið með Stjörnunni og skorað 10 mörk í 61 leik í deild og bikar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.