10.11.09 - 14:33
Hafliði Breiðfjörð
Gus Poyet ráðinn knattspyrnustjóri Brighton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Úrúgvæinn Gus Poyet var í dag ráðinn þjálfari enska 1. deildarliðsins Brighton & Hove Albion.
Poyet hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn sem aðstoðarþjálfari Tottenham í október árið 2008.
Brighton er í 20. sæti ensku 1. deildarinnar sem er þriðja efsta deild þar í landin og telur 24 lið.
Poyet hefur verið ráðinn þjálfari liðsins út tímabilið
Sem leikmaður var hann með liðum á borð við Real Zaragoza, Chelsea og Tottenham en hann varð aðstoðarmaður Dennis Wise hjá Swindon árið 2006.
Hann fór með Wise til Leeds áður en Tottenham réði hann til að vinna með Juande Ramos í október árið 2007.

Heimild: AP