11.01.07 - 10:30
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Jonathan Stead til Sheffield United (Staðfest)

Stead í leik með Sunderland

Mynd: Getty Images

Stead í leik með Sunderland

Mynd: Getty Images
Sheffield United hafa gengið frá kaupunum á Jonathan Stead frá Sunderland. Þessi 23 ára gamli sóknarmaður kostar nýliðanna 750 þúsund pund og er hann önnur kaup þeirra í janúar, en fyrr í vikunni kom varnarmaðurinn Matthew Kilgallon frá Leeds.
Eins og fyrr segir kemur Stead frá Sunderland en hann hefur þó verið meirihlutann á þessu tímabili á láni hjá Derby. Derby vildu einnig fá hann til sín, en þeim mistókst að ganga frá samningum við Sunderland og þar komu Sheffield inní.
Stead, sem kom til Sunderland frá Blackburn fyrir 1,8 milljónir punda árið 2005, skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Neil Warnock og hans menn.
Stead, sem kom til Sunderland frá Blackburn fyrir 1,8 milljónir punda árið 2005, skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Neil Warnock og hans menn.
Heimild: Sky
