Fotbolti.net
11.01.07 - 10:39
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Wigan lánar Mike Pollitt til Burnley (Staðfest)

Pollitt í leik með Wigan

Pollitt í leik með Wigan

Canon

Mynd: Getty Images

Burnley hafa fengið til sín markvörðinn Mike Pollitt á eins mánaða löngu láni frá Wigan. Pollitt hefur dottið niður goggunarröðina eftir að Chris Kirkland kom til félagsins í sumar og hefur sá síðarnefndi verið að spila mjög vel fyrir þá.
Þessi 34 ára gamli markvörður var einnig á láni hjá Ipswich fyrr á þessu tímabili. Wigan setti klásúlu inn í samninginn að þeir geta kallað hann til baka 24 klukkustunda fyrirvara.

,,Það er vandamál þegar þú ert með þrjá svona góða markmenn hjá einum klúbbi, vegna þess að einn þeirra mun ekki vera í hópnum þegar allir eru heilir," sagði stjórinn Paul Jewell á heimasíðu félagsins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.