Fotbolti.net
11.01.07 - 12:44
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Varnarmaðurinn Nadir Belhadj til Lyon í sumar (Staðfest)

Houllier fær til sín algerískan bakvörð

Houllier fær til sín algerískan bakvörð

Canon

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörðurinn Nadir Belhadj gengur til liðs við frönsku meistaranna Lyon í sumar frá Sedan fyrir rúmar tvær milljónir punda.
Belhadj, sem skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning, mun vera áfram hjá Sedan á láni til sumars næstu fimm mánuði og hjálpa þeim í að reyna að bjarga sér frá falli.

,,Ég er mjög ánægður. Ég var í sambandið við önnur félög eins og Lens, Lille, Ajax og PSV en um leið og Lyon sýna áhuga geturu ekki hafnað," sagði þessi algeríski landsliðsmaður.

,,Þeir eru besta liðið í Frakklandi og eitt besta liðið í Evrópu. Mér finnst ég vera mjög heppinn að ganga til liðs við þennan klúbb eftir að hafa verið að spila með botnliði í aðeins sex mánuði."

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.