11.01.08 - 12:12
Magnús Már Einarsson
Hossam Ghaly til Derby (Staðfest)

Ghaly fagnar marki með Tottenham.

Mynd: Getty Images

Ghaly fagnar marki með Tottenham.

Mynd: Getty Images
Derby County heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi baráttu í ensku úrvalsdeildinni en félagið hefur fengið Hossam Ghaly á láni frá Tottenham út þetta tímabil.
Ghaly hefur ekkert leikið með Tottenham á leiktíðinni en hann var nálægt því að ganga til liðs við Birmingham í sumar.
Hann fékk í nóvember að æfa með Al Ahly í heimalandi sínu Egyptalandi til að halda sér í formi fyrir Afríkumótið. Hann dró sig hins vegar úr landsliðshópi Egypta í síðustu viku til að ganga frá samningum við Derby.
Ghaly er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Derby á innan við viku en félagið hefur samið við Danny Mills, Emmanuel Villa og Laurent Robert.
Paul Jewell stjóri félagsins vonast einnig til að ná að krækja í Roy Carroll markvörð Glasgow Rangers og ástralska framherjann Mile Sterjovski sem leikur með Genclerbirligi Oftasspor í Tyrklandi.

Heimild: Sky