Fotbolti.net
11.01.08 - 19:14
Magnús Már Einarsson

Afturelding fær framherja frá færeysku liði (Staðfest)

Úr leik hjá Aftureldingu síðastliðið sumar.

Úr leik hjá Aftureldingu síðastliðið sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Afturelding úr annarri deild hefur samið við enska framherjann Paul Clapson og mun hann leika með liðinu á komandi sumri.
Clapson sem er 24 ára kemur til Aftureldingar frá færeyska liðinu KÍ Klakksvík.

Með KÍ Klakksvík var Clapson þriðji markahæsti leikmaðurinn í færeysku deildinni á síðasta ári með þrettán mörk.

Hann hefur leikið með KÍ Klakksvík í tvö ár en áður hafði hann leikið með háskólaliðum í Bandaríkjunum í nokkur ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.