Fotbolti.net
11.01.12 - 14:14
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Hörður Björgvin Magnússon til Juventus (Staðfest)

Hörður Björgvin við undirskriftina í dag

Hörður Björgvin við undirskriftina í dag

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Hörður Björgvin Magnússon skrifaði í dag undir fjögurra og hálfs árs samning við ítalska stórliðið Juventus en hann kemur til félagsins frá Fram. Þetta staðfesti hann við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Hörður, sem er 18 ára gamall hefur verið á láni hjá Juventus frá Fram frá því í janúar á síðasta ári en hann hefur leikið með varaliði félagsins ásamt því að æfa reglulega með aðalliðinu.

Eins og við greindum frá í desember þá höfðu félögin komist að samkomulagi um kaupverð á Herði, en hann skrifaði undir samning við félagið í dag.

Hann hefur leikið fimm leiki með varaliðinu í bæði deild og bikar ásamt því að leika nokkra æfingaleiki með aðalliðinu. Þá fór hann með aðalliði félagsins í æfingaferð til Dubai undir lok árs en hann er í miklum metum hjá félaginu.

Hann er þá búinn að vera fastamaður í yngri landsliðum þar sem hann hefur verið fyrirliði hjá U17, U18 og U19 ára landsliði Íslands, en hann á að baki 23 leiki með liðunum. Hann á þá einnig sex leiki að baki með Fram í Pepsi-deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.