11.01.12 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Rory Donnelly kominn til Swansea (Staðfest)

Mynd: Heimasíða Cliftonville

Mynd: Heimasíða Cliftonville
Norður-Írski landsliðsmaðurinn Rory Donnelly er kominn til Swansea frá írska liðinu Cliftonville.
Þessi nítján ára spennandi sóknarmaður er kominn með leikheimild með Swansea sem situr í tólfta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Donnelly var einnig orðaður við Everton og Liverpool en hér að neðan má sjá myndband af glæsilegu marki sem hann skoraði fyrir Cliftonville.
Þá hefur Swansea einnig tilkynnt það að nítján ára franskur varnarmaður, Darnel Situ, sé kominn með leikheimild.
Situ hefur leikið fyrir unglingalandslið Frakklands en hann var áður á mála hjá Lens í heimalandinu.