11.01.12 - 16:15
Elvar Geir Magnússon
Andri Björn og Alexander Kostic í ÍR (Staðfest)

Andri Björn Sigurðsson í leik með Gróttu.

Mynd: Eyjólfur Garðarsson

ÍR er að bæta við sig leikmönnum en þeir Andri Björn Sigurðsson og Alexander Kostic eru komnir til liðsins og munu leika í Breiðholtinu á næsta tímabili.
Andri er uppalinn ÍR-ingur en lék með Gróttu í 1. deildinni í fyrra. Hann skoraði sjö mörk í deildinni en þar af voru fjögur í 4-1 sigri Gróttu á ÍR! Grótta féll úr deildinni síðasta tímabil.

Andri er 22 ára sóknarmaður sem lék fimm leiki með ÍR á Íslandsmótinu 2005.
Alexander Kostic er 19 ára KR-ingur en hann hefur ekki meistaraflokksreynslu. Hann á sex leiki að baki fyrir U17 landslið Íslands en pabbi hans er Lukas Kostic, þjálfarinn þekkti.
ÍR hafnaði í níunda sæti 1. deildar í fyrra undir stjórn Guðlaugs Baldurssonar en Andri Marteinsson tók við liðinu eftir tímabilið.
Auk þessara tveggja leikmanna hefur ÍR fengið til sín í vetur þá Jamie McCunnie frá Grindavík, Martein Gauta Andrason frá Haukum og markvörðinn Magnús Karl Pétursson frá Stjörnunni.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er líklegt að fleiri leikmenn bætist í þann hóp á næstu dögum.