Fotbolti.net
11.01.12 - 19:30
Magnús Már Einarsson

Gael Kakuta til Dijon (Staðfest)

Gael Kakuta til Dijon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska félagið Dijon hefur fengið Gael Kauta kantmann Chelsea á láni út tímabilið.

Kakuta var á láni hjá Bolton fyrir áramót en hann fékk fá tækifæri þar líkt og þegar hann var á láni hjá Fulham á síðasta tímabili.
Þessi tvítugi Frakki mun núna reyba að hjálpa Dijon en liðið er í fimmtánda sæti í frönsku úrvalsdeildinni.

Kakuta var mikið í fréttum árið 2009 þegar að FIFA úrskurðaði að hann hefði brotið samninga til að ganga í raðir Chelsea.

FIFA ákvað að setja Chelsea í félagaskiptabann sem var síðar aflétt auk þess sem Kakuta var sjálfur sektaður.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.