11.02.06 - 06:05
Magnús Már Einarsson
Pericard lánaður til Plymouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Vincent Pericard framherji Portsmouth hefur verið lánaður til fyrstudeildarliðsins Plymouth Argyle út þessa leiktíð og mun hann væntanlega leika fyrsta leik sinn með liðinu gegn Sheffield United í dag.
Þessi 23 ára Frakki sem kom til Portsmouth árið 2003 var í láni hjá Sheffield United fyrr á leiktíðinni í þrjá mánuði, hann stoppaði síðan stutt við hjá Portsmouth áður en hann var nú lánaður aftur.
,,Vincent hefur sagt að hann þurfi að fara að spila aftur og skora mörk. Við erum ánægðir með að Vincent hefur valið Plymouth sem kostinn til að byrja að spila aftur," sagði Toni Pulis stjóri Plymouth.